|
Sigurður er lærður húsgagnabólstrari.
Hann er þekktastur fyrir stólinn Fuzzy
sem upphaflega var smíðaður árið
1972. Sigurður hefur bæði hannað
og bólstrað húsgögn samhliða
smíðinni, ásamt því að smíða leiktæki
fyrir börn. Hann hefur tekið þátt í
sýningum og má geta þess að
stóllinn Fuzzy var valinn
á Scandinavian design sýningu sem
stendur yfir í Kaupmannahöfn.
Saga fuzzy er einkar skemmtileg þar sem
nafnið fuzzy í latínu merkir lítill loðinn karl.
Hönnun fuzzy er hugsuð út frá þessu og
fætur eru hugsaðir sem vatnsdropar og
renndir í tré eins og vatnsdropar.
Hægt er að hafa samband
beint við Sigurð í
síma : 557-1425 og 867-5118. |